Fréttir

Hátíðardagskrá á Akureyri 10. desember nk.

Í tilefni af lokadegi 16 daga átaks

3.12.2009

10. desember 2009

Í tilefni af lokadegi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og degi Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna verður flutt

Hátíðardagskrá kl. 16:15 í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri

Erindi flytja:

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu – Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 30 ára

Sigrún Stefánsdóttir, formaður félagsmálaráðs – Aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar gegn ofbeldi

Þórdís Elva Þorsteinsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnar „Á mannamáli“

Nemandi í Menntaskólanum á Akureyri

Tónlistaratriði

Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson

Samstaða á Ráðhústorgi

Ljósaganga niður að Ráðshústorgi kl. 17:00, nemendur úr MA leiða gönguna

Þátttakendur í göngunni mynda handaband á Ráðshústorgi

Tónlist

Snorri Guðvarðsson

 

Enda þótt staða íslenskra kvenna sé sterk á mörgum sviðum þá er kynbundið ofbeldi alvarlegt vandamál hér á landi. Árið 2008 leituðu 547 einstaklingar til Stígamóta en frá upphafi samtakanna til ársloka 2008 hafa alls 5.279 manns leitað þar aðstoðar. 22 % íslenskra kvenna hafa einhvern tíma á ævinni verið beittar ofbeldi af maka eða fyrrverandi maka en 530 konur hafa leitað til Kvennaathvarfs á árinu 2009. – Árið 2008 voru 285 einstaklingsviðtöl hjá Aflinu á Akureyri og hafði fjölgað um 94% frá fyrra ári. 1. október 2009 voru viðtölin orðin jafn mörg og allt árið í fyrra.

 

Jafnréttisstofa, Akureyrarbær, Háskólinn  á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Aflið,  Zontaklúbbarnir á Akureyri, Soroptimistar, Norðurlandsdeild Fíh, UNIFEM á Íslandi

 

 

Hliðarval


 

Leturstærð: