Ráðstefnan er haldin á vegum Listar án landamæra, sem er árlegur viðburður þar sem lögð er áhersla á samvinnu fólks með fötlun og almennings í gegnum listir og menningarstarf, í þeim tilgangi að efla vitund og skilning á milli einstaklinga sem búa að ólíkri getu til athafna, til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
Aðstandendur Listar án landamæra eru Landssamtökin Þroskahjálp, Öryrkjabandalag Íslands, Fjölmennt, Átak félag fólks með þroskahömlun og Hitt húsið.
Ráðstefnan er skipulögð í samráði við Norrænu nefndina um málefni fólks með fötlun, menntamálaráðuneytið, og með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar og Norræna menningarsjóðsins. Ráðstefnan er hluti af dagskrá formennskuáætlunar Íslands, sem gegnir formennsku í norrænu ráðherranefndinni árið 2009.
Á ráðstefnunni verður m.a fjallað um:
· Sýnileika ogkynningu fatlaðra í fjölmiðlum og menningu í norrænum löndum.
· Mikilvægi 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun (Þátttaka í menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi).
· Gildi Listar án landamæra og annarrar menningarstarfsemi sem fyrirmynda fyrir grasrótar-hreyfingar og þátttöku fólks með fötlun í listum og menningarstarfi, sem hægt væri að nýta svæðisbundið eða á landsvísu í öðrum norrænum löndum.
Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel í Reykjavík 28. september 2009.
Ráðstefnan er opin almenningi og allir eru velkomnir en ætti sérstaklega að höfða til samtaka fatlaðra á Norðurlöndunum, fræðimanna, þeirra er vinna að málefnum fólks með fötlun og stjórnenda á sviði lista- og menningarmála.
Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnunni, en þátttakendur þurfa að skrá sig. Það má gera með því að slá inn þessa slóð hér fyrir neðan. Í skráningunni má einnig skrá sig í hádegismat og á leiksýningu Dissimilis í Borgarleikhúsinu.
Skráning:
http://www.eventure-online.com/eventure/welcome.do?type=participant&congress=69_9028&page=index
DAGSKRÁ
Ráðstefnustjóri:
Þuríður Backmann, alþingismaður og formaður Norrænu nefndarinnar um málefni fatlaðra
9:00 I. UPPHAF RÁÐSTEFNUNNAR
Gestir boðnir velkomnir
Þuríður Backmann, ráðstefnustjóri
Opnunarávarp
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
Upphafsorð
Tone Mørk, stjórnandi Norrænu Velferðarmiðstöðvarinnar, Stokkhólmi
9:30 II. SÝNILEIKI FÓLKS MEÐ FÖTLUN
Samspilið milli fjölmiðla, menningarlífs og stjórnmála
Lars Grip, blaðamaður, Stokkhólmi
Rannsóknir á sýnileika í sænskum fjölmiðlum,
með áherslu á almannaþjónustu
Karin Ljuslinder, prófessor við háskólann í Umeå í Svíþjóð
10:20 – 10:40 KAFFIHLÉ
Birtingarmynd fötlunar í norrænum kvikmyndum - endurskoðun
Friederike A. Hesselman, rithöfundur
Hinn ósýnilegi minnihluti
Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri útvarps hjá Ríkisútvarpinu (RÚV)
Stillt á staðnaðar ímyndir? Sýnileiki fatlaðra í fjölmiðlum
Pallborðsumræður: Lars Grip, Karin Ljuslinder, Friederike A. Hesselman og
Ingólfur Margeirsson
12:10 – 13:10 HÁDEGISHLÉ
13:10 III. SAMNINGUR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA UM RÉTTINDI
FÓLKS MEÐ FÖTLUN
30. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun
Guðmundur Magnússon, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands og
fulltrúi í nefnd sem undirbýr staðfestingu Íslands á samningnum
Mikilvægi menningarstarfs í nútímaþjóðfélagi
Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála,
menntamálaráðuneytinu
13:40 IV. LIST ÁN LANDAMÆRA OG ÖNNUR DÆMI
Framkvæmd og þróun Listar án landamæra
Margrét M. Norðdahl, framkvæmdastýra hátíðarinnar
Þátttakendur og reynslusögur
Flytjendur verða kynntir síðar
14:30 – 14:50 KAFFIHLÉ
Upphaf og hugmyndafræði Listar án landamæra - Eitthvað fyrir aðra?
Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Dissimilis: Frá eldhúsborðinu til Óperuhússins
Kai Zahl, stofnandi Dissimilis í Noregi
Hver eru næstu skref fram á við?
Pallborðsumræður: Guðmundur Magnússon, Friðrik Sigurðsson, Kai Zahl
16:00 V. RÁÐSTEFNULOK
Hugleiðing: Hinn fullkomni maður: Staða fatlaðra í menningunni
Ármann Jakobsson, dósent við Háskóla Íslands
Samanatekt og lokaorð
Þuríður Backmann, alþingismaður og
formaður Norrænu nefndarinnar um málefni fatlaðra
- Þau erindi sem fram fara á erlendu máli verða þýdd af rittúlkum á íslensku.
KVÖLD DAGSKRÁ
Gestum ráðstefnunnar sem og öðrum er boðið á stóra svið Borgarleikhúsið að kvöldi 28.september, kl.20:00.
Þá mun norski hópurinn Dissimilis sýna verkið ´´Árstíðirnar fjórar´´ og íslenskir leikhópar sýna einnig verk sín. Hægt er að skrá sig á sýninguna þar sem skráning á ráðstefnuna fer fram ( sjá að ofan).
Um Dissimilis:
Fyrir u.þ.b. 30 árum sat Kai Zahl, faðir þroskahefts ung manns, og átti erfitt með að sætta sig við að stærsti draumur sonars hans um að spila á hljóðfæri og spila í hljómsveit gæti ekki orðið að veruleika því að sonurinn gat ekki lesið nótur. Kai tók að hanna einfalt nótnakerfi með litum sem gerði syni hans kleift að læra að spila á hljóðfæri og 1981 var fyrsta hljómsveit hans stofnuð. Þetta var upphafið að Dissimilis.
Næstu árin fóru fleiri að æfa með Dissimilis og árið 1987 skrifaði Kai Zahl söngleik fyrir hópinn. Fyrsta sýning þeirra var sýnd fyrir fullu húsi í Hljómleikahöllinni í Osló. Þetta var í fyrsta skipti sem eingöngu þroskaheftir einstaklingar komu fram á sýningu í Osló og olli hún afgerandi hugarfarsbreytingu sýningargesta. Áfram var haldið næstu árin, hljómsveitirnar urðu fleiri og fjölbreyttari og danshópar og kórar bættust við. Dissimilishópar spruttu upp í fleiri landshlutum í Noregi og síðan í fjarlægum heimshornum. Hópar voru stofnaðir á Kúbu, Sri Lanka, Rússlandi og í fleiri löndum og þessi hópar uxu og döfnuðu. Í dag eru um 800 meðlimir í Dissimilis í Noregi og um 2500 í öðrum löndum.
Um verkið:
“Árstíðirnar fjórar” er verk leikið af 22 nemendum Dissimilis.
Þau bjóða okkur í ferðalag um árstíðirnar fjórar og fjölbreytileika þeirra.
Frekari upplýsingar um Dissimilis má sjá á síðu þeirra:
www.dissimilis.no
List án landamæra:
www.listanlandamaera.blog.is og listanlandamaera@gmail.com
--
List án landamæra
www.listanlandamaera.blog.is
Sími: 691-8756