Fréttir

Ráðstefna - Umönnunarstefna, jafnrétti og börn á Norðurlöndunum

2.7.2009

Hinn 22. október verður haldin á Íslandi ráðstefna um umönnunarstefnu, börn og jafnrétti á

Norðurlöndum.

Á ráðstefnunni verður kynnt samnorræn rannsókn sem hafin er á umönnunarstefnu, kynjajafnrétti

og líðan barna. Í rannsókninni er meðal annars leitað svara við því hvernig fæðingarorlofsréttur

er nýttur og hvaða áhrif það hefur á samband foreldra og barna og stöðu kynja á

vinnumarkaði. Dr. Ingólfur V. Gíslason lektor og Dr. Guðný Björk Eydal dósent við Háskóla

Íslands stýra rannsókninni. Aðrir þátttakendur í rannsókninni eru:

Dr. Tine Rostgaard - Danish National Institute of Social Research

Dr. Johanna Lammi-Taskula - National Institute for Health and Welfare, Finland

Dr. Berit Brandth - Department of Sociology and Political Science, Norwegian University of

Science and Technology

Dr. Ann-Zofie Duvander - Swedish Social Insurance Agency

Aðalfyrirlesari er Dr. Janet Gornick, prófessor í stjórnmála- og félagsfræði við City University í New York og meðhöfundur bókarinnar Gender Equality: Transforming Family Divisions of Labor.

Dr. Janet Gornick er yfirmaður Luxembourg Income Study.

 

Ráðstefnan er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, en Ísland gegnir formennsku í nefndinni

þetta árið. Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisstofa hafa umsjón með dagskrá

jafnréttismála. Nánari upplýsingar veitir Jafnréttisstofa, með tölvupósti jafnretti@jafnretti.is og

í síma 460 6200.

 

Ráðstefnan fer fram á ensku og dagskrá verður auglýst síðar.

Skráning er á heimasíðunni: http://www.yourhost.is/parentalleave2009/registration.html

 



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica