Alþjóðadegi flóttamanna fagnað í start art listahúsi
þann 20. júní síðastliðinn stóðu Mannréttindaskrifstofa Íslands og Rauði kross Íslands í samstarfi við kaffitár og Start Art fyrir opnu húsi í Start Art listahúsi á Laugaveginum. Málefni og menning flóttamanna og hælisleitenda var kynnt og boðið var upp á kaffi og veitingar frá þeim löndum sem flestir hælisleitendur koma frá sem leita hælis á Íslandi. Boðið var upp á skemmtiatriði frá ýmsum heimshornum eins og afró dans, magadans auk þess sem Juan frá Kúbú kom og söng fyrir gesti. Nýtt myndband með Angelinu Jolie velgjörðarsendiherra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna var frumsýnt og vefleikurinn Flótti var kynntur. Viðburðurinn var velheppnaður og margir stoppuðu við í kaffisopa og spjall, nutu veitinganna og fengu um leið fræðslu um málefni flóttamanna.
![2009_06_22_0578[1]](/media/frettir/large/2009_06_22_0578[1].jpg)
Á alþjóðadegi flóttamanna er vakin athygli á stöðu flóttafólks og allra þeirra sem neyðast til að leggja á flótta. Um 42 milljónir manna eru á vergangi vegna átaka, ofbeldis eða annarra orsaka. Af þeim eru tæplega 12 milljónir flóttamenn utan heimalands síns en um 26 milljónir eru á vergangi innan eigin landamæra. Mikill meirihluti þessa fólks leitar ásjár í nágrannaríkjum sem oftast nær eru mjög fátæk. Íslensk stjórnvöld hafa boðið 512 flóttamönnum vernd hér á landi í samvinnu við Flóttamannastofnun, Rauða kross Íslands og sveitarfélög í landinu frá árinu 1956.. Fyrsti hópur flóttamanna kom frá Ungverjalandi en síðan hefur flóttafólk frá Júgóslavíu, Víetnam, Póllandi,Kosovó, Kólumbíu og Palestínu fengið skjól hér á landi. Á tímabilinu 1990-2008 hafa um 680 leitað hælis á Íslandi eftir að hafa flúið heimalönd sín, þar af 76 á síðasta ári. Nú dvelja um 30 hælisleitendur á Íslandi og bíða þess að mál þeirra séu tekin til meðferðar. Fólki hættir til að líta á flóttafólk aðeins sem fórnarlömb og það gleymist að flóttafólk tekur virkan þátt í byggja hér betra samfélag og hefur auðgað íslenska menningu og mannlíf.
![2009_06_22_0564[1]](/media/frettir//large/2009_06_22_0564[1].jpg)


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project