Fréttir

Ritið The UN Convention on the Rights of Persons with Disabilities: European and Scandinavian Perspectives komið út

18.6.2009

Út er komið ritið The UN Convention on the Rights of Persons with Disabilities: European and Scandinavian Perspectives. Ritið kemur út í kjölfar alþjóðlegrar rannsóknaráðstefnu sem skipulögð var af Mannréttindaskrifstofu Íslands og lagadeild HR, í samvinnu við Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp með styrk frá Evrópusambandinu og Félagsmálaráðuneytinu. Ráðstefnan var haldin haustið 2007 í HR en um 160 aðilar innlendir og erlendir sóttu ráðstefnuna, en ráðstefnan var hluti af Evrópuári jafnra tækifæra.

Um er að ræða ritrýnt greinasafn þar sem 13 fræðimenn og ‐konur birta greinar um hinn nýja sáttmála Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi fólks með fatlanir sem tók gildi í mars 2008. Ritstjórar eru Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík og Gerard Quinn, prófessor við National University of Ireland.

Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fatlanir er fyrsti alþjóðlegi mannréttindasáttmáli 21. aldarinnar. Með honum er leitast við að tryggja að þær u.þ.b. 650 milljónir jarðarbúa sem búa við fatlanir af ýmsu tagi njóti virkrar og jafnrar mannréttindaverndar á við aðra. Það er gert með því að aðlaga hin almennu mannréttindi sem tryggð eru í öðrum mannréttindasáttmálum sérstaklega að þörfum og veruleika fólks með fatlanir. Sáttmálinn felur þannig í sér sambland jafnréttisákvæða og sjálfstæðra efnisákvæða. Hann ber vitni um ýmis lagaleg nýmæli á sviði málefna fólks með fatlanir og nálgast viðfangsefnið út frá lagalega skuldbindandi réttindum í stað óskuldbindandi félagslegrar stefnumörkunar. Þá staðfestir sáttmálinn í ýmsum dráttum fræðilega þróun síðustu ára á sviði alþjóðlegrar mannréttindaverndar, meðal annars með því að staðfesta nálgun efnislegs jafnréttis og það að allir flokkar mannréttinda eru samtengdir og innbyrðis háðir. Greinasafnið fjallar um þessa þróunardrætti frá sjónarhorni alþjóðlegrar mannréttindaverndar, Evrópuréttar og landsréttar á Norðurlöndum. Um er að ræða fyrsta alþjóðlega fræðiritið um sáttmálann og markar það þau tímamót að staðsetja málefni fatlaðra meðal kjarnasviða alþjóðlegrar mannréttindaverndar. Ritið er gefið út af Martinus Nijhoff Publishers í Hollandi, sem sérhæfir sig í útgáfu vandaðra fræðitímarita og ‐bóka á sviði þjóðaréttar, mannréttinda og mannúðarlaga. Bókin er rit nr. 100 í ritröðinni International Studies in Human Rights, en ritröðinni er ætlað það hlutverk að varpa á hverjum tíma ljósi á áleitin lagaleg og pólitísk álitaefni á sviði alþjóðlegrar mannréttindaverndar. Áður hefur Oddný gefið út bókina Equality and Non‐Discrimination under the European Convention on Human Rights í þessari sömu ritröð (nr. 74). Ritið er einkum ætlað rannsakendum og háskólanemum á sviði lögfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði og fötlunarfræði, en einnig öllum þeim sem áhuga hafa á réttindum fólks með fatlanir og alþjóðlegri og evrópskri mannréttindavernd.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica