Fréttir
Norræn ráðstefna um jafnréttisfræðslu í skólum
Grand Hótel Reykjavík 21. og 22. september 2009
Opin ráðstefna fyrir alla sem vilja fræðast um jafnréttisfræðslu og jafnréttisstarf
í skólum og sækjast eftir innblæstri til góðra verka á því sviði.
Á ráðstefnunni verða fyrirmyndarverkefni frá öllum Norðurlöndunum kynnt og farið yfir
stöðu mála í Evrópu á sviði jafnréttisstarfs í skólum. Ráðstefnan sem er öllum opin er kjörinn
vettvangur fyrir skólafólk, foreldra, fræðimenn, stjórnmálamenn og alla þá sem vilja fræðast
um jafnrétti í námi og starfi.
Auk fyrirlesara frá öllum Norðurlöndunum verða lykilfyrirlesarar:
? Mike Younger, deildarforseti kennaradeildar Cambridge-háskóla. Younger hefur sérhæft sig
í rannsóknum á sviði kynjajafnréttis og grunnmenntunar kennara, en hann var meðal
annars annar af forvígismönnum rannsóknarverkefnisins Raising Boys‘ Achievement sem
miðaði að því að finna leiðir til að bæta frammistöðu drengja í skólum.
? Eva Nyström, lektor við Umeå háskóla í Svíþjóð. Eva hefur meðal annars tekið þátt í stóru
rannsóknarverkefni sem miðar að því að auka áhuga nemenda í sænskum framhaldsskólum
og bæta námsárangur þeirra.
? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Ingólfur hefur tekið þátt í
fjölda rannsókna á sviði menntaumbóta og kynjafræða.
Ráðstefnan hefst að kvöldi 21. september en hún fer fram á norðurlandamálum og verður
túlkuð.
Ráðstefnan er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, en Ísland gegnir formennsku í nefndinni
þetta árið. Félags- og tryggingamálaráðuneytið og menntamálaráðuneytið sjá um framkvæmd
ráðstefnunnar en umsjón með undirbúningi hefur Jafnréttisstofa. Nánari upplýsingar veitir
Jafnréttisstofa, með tölvupósti á netfangið jafnretti@jafnretti.is og í síma 460 6200.
Skráning er á heimasíðunni http://formennska2009.jafnretti.is


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project