Fréttir

Árleg ráðstefna evrópskra kvenlögfræðinga

MANNRÉTTINDI OG FJÁRMÁLAMARKAÐIR

15.6.2009

Evrópskir kvenlögfræðingar halda árlega ráðstefnu sína í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík þann 3. - 4. júlí n.k. Þema ráðstefnunnar er MANNRÉTTINDI OG FJÁRMÁLAMARKAÐIR. Ráðstefnan er öllum opin.

EVA JOLY er aðalfyrirlesari. Einar Már Guðmundsson rithöfundur fjallar um íslenska hrunið. Ráðuneytisstjórar, hæstarréttarlögmenn, prófessorar, rithöfundar og fleiri fjalla um ýmsa vinkla mannréttinda og fjármálamarkaða – siðferði í fyrirtækjum, áhættustýringu í efnahagshruninu, fjölskyldur í kreppu, kynferðislegt ofbeldi og jafnréttismál á örlagaríkum tímum.
Dagskrána má finna hér: http://www.bifrost.is/pages/ewla-radstefna/upplysingar/ og unnt er að skrá sig til þátttöku núna.

Ef þú skráir þig núna er ráðstefnugjaldið 10.000 kr. og innifalið í því hádegisverður á Sólon Islandus bæði föstudag og laugardag. Enn ódýrara ráðstefnugjald fyrir námsmenn.

Skráning hér http://www.bifrost.is/pages/radstefnur/ewla-umsokn-islenska-/

Auk þess er unnt að skrá sig sérstaklega í kvöldverð á föstudegi og ferð til Þingvalla sem endar á miðaldakvöldverði í Skálholti á laugardegi



 

 

 

Leturstærð: