Fréttir

Könnun um viðhorf til mismununar kynnt og plakataherferð gegn mismunun hleypt af stokkunum

9.6.2009

Mannréttindaskrifstofan og félags-og tryggingamálaráðuneytið kynntu í dag niðurstöður könnunar um viðhorf almennings til mismununar. Í könnuninni sem framkvæmd var af Capacent Gallup í apríl sl,. var mismunun greind út frá sex forsendum: kynferði, fötlun, kynhneigð, trú, aldri og kynþætti/þjóðerni. Spurningarnar voru unnar með hliðsjón af Eurobarometer könnun Evrópusambandsins Discrimination in the European Union og er könnunin því samanburðarhæf í ríkjum ESB. Niðurstöður könnunarinnar sýna að staða ýmissa hópa, s.s. samkynhneigðs fólks og þeirra sem aðhyllast minnihlutatrúarbrögð er talin betri hér á landi en í ýmsum öðrum Evrópulöndum þótt enn verði ýmsir hópar fyrir fordómum vegna tiltekinna eiginleika eða skoðana. Í tengslum við þær efnahagsþrengingar sem Ísland gengur nú í gegnum og aukið atvinnuleysi er mikilvægt að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur til að tryggja að allir eigi sömu tækifæri óháð kynferði, trú, fötlun, aldri, skoðunum, uppruna, kyngervi, kynþætti, litarhætti og kynhneigð. Af þeim sökum hleypti Mannréttindaskrifstofa Íslands og félags-og tryggingamálaráðuneytið af stokkunum vitundarvakningarátakinu;

Fylgdu hjartanu, sameinumst í fjölbreytninni!

hjarta1

Veggspjöldin hafa nú verið birt í götugluggum víðsvegar um Reykjavík og Akureyri auk þess sem minni veggspjöldum og póstkortum með myndinni hefur verið dreift um allt land. Markmið átaksins er að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi fjölbreytni fyrir íslenskt samfélag og þá staðreynd að þótt fólk sé ólíkt á yfirborðinu þá erum við öll eins inn við beinið. Átakinu er ætlað að hvetja fólk til að líta í eigin barm og kveða niður fordóma sína og stuðla þannig að samfélagi þar sem allir íbúar njóta virðingar og jafnra tækifæra.

Hér má finna könnunina í fullri lengd.

 

 

 

Leturstærð: