Fréttir

Skýrsla nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum

27.5.2009

Nefnd um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum var skipuð í nóvember 2007 af félags‐ og tryggingamálaráðherra í samræmi við þingsáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Verkefni hennar var að fjalla um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra og um réttarstöðu stjúpforeldra. Tillögur nefndarinnar flokkast í þrjú meginsvið, sifjamál og félagsleg stöðu barna, fræðslu og ráðgjöf til barnafjölskyldna og fjármál barnafjölskyldna. Tillögur sem lagðar eru fram í skýrslunni falla undir fjögur ráðuneyti, þ.e. dómsmálaráðuneyti, félags- og tryggingamálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti.

Skýrslan var gefin út í apríl 2009 og er hægt að nálgast hana í heild sinni hér.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica