Fréttir

Vefleiknum Flótta hleypt af stokkunum

www.flotti.org

20.5.2009

Í dag 20. maí var vefleiknum Flótta hleypt af stokkunum við hátíðlega athöfn í Vogaskóla. Leikurinn, sem á frummálinu heitir "Against all Odds", var unninn af Flóttmannastofnun Sameinuðu þjóðanna til að auka vitund ungs fólks á reynslu flóttafólks og mannréttindum almennt. Leikurinn hefur nú verið þýddur og staðfærður í yfir níu löndum en íslenska útgáfan sem Mannréttindaskrifstofa Íslands og Rauði Kross Íslands unnu að í samstarfi við Flóttamannastofnunina er sú tíunda í röðinni.

Vonast er til að vefleikurinn „Flótti“ auki skilning á vanda flóttafólks og stuðli þannig að auknu umburðarlyndi, fjölmenningu og mannréttindavitund í íslensku samfélagi.

Guðrún Ögmundsdóttir, formaður nefndar um flóttafólk og Hanne Mathiesen yfirmaður hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna fluttu stutt ávörp fyrir gesti en eftir það spiluðu nemendur í 9. bekk Vogaskóla leikinn í fyrsta skipti.

Opnun leiksins gekk með eindæmum vel og  þakkar Mannréttindaskrifstofan nemendum og starfsfólki Vogaskóla kærlega fyrir að taka þátt í þessu verkefni með okkur.

 

Flotti

 

Um allan heim, í öllum löndum fyrirfinnast flóttamenn og daglega lesum við um erfiðar aðstæður þeirra í fjölmiðlum. Móttaka og aðlögun flóttamanna í Evrópu eru einhver mikilvægustu stjórnmálalegu og siðferðilegu álitamál samfélagsins. Fólk neyðist til að leggja á flótta þegar mannréttindum þess er ógnað eða þau brotin. Enginn kýs sjálfviljugur að leggja á flótta; flóttamenn verða til vegna þess að stjórnvöld hafa ekki burði til eða vilja ekki, vernda borgara sína.

Leikurinn er í raun þríþættur: Í fyrsta lagi tölvuleikur þar sem þátttakendur setja sig í spor flóttamanna. Í öðru lagi fylgir leiknum upplýsingavefur þar sem hægt er að nálgast fræðsluefni um mannréttindi og flóttafólk í formi greina, viðtala og kvikmynda og í þriðja lagi fylgir leiknum kennarahandbók þar sem finna má dæmi um einföld og skemmtileg verkefni og umræðuefni sem nýtast kennurum við kennslu í tengslum við leikinn. Leikurinn nýtist þannig sem ítarlegt mannréttinda- og fjölmenningarkennsluefni, einkum fyrir nemendur á aldrinum 13-16 ára.

flotti3

Í leiknum neyðist leikmaðurinn að flýja heimaland sitt í snarhasti vegna ofsókna stjórnvalda, hann fær aðeins að taka með sér þær eigur sem komast í lítinn bakpoka og þarf að yfirgefa vini og fjölskyldu. Þátttakendur kynnast þeim fjölmörgu áskorunum sem flóttamenn standa frammi fyrir á flóttanum sjálfum og þegar þeir reyna að aðlagast nýrri menningu, s.s. tungumálaörðugleikum, atvinnuleit, því að reyna að eignast vini í nýjum skóla ásamt því að kljást við fordóma og þekkingarleysi.

Útgáfa leiksins var styrkt af Mannréttindaskrifstofu Íslands, Rauða krossi Íslands, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, félagsmálaráðuneyti, Nefnd um flóttafólk, Barnavinavinafélaginu Sumargjöf, Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar og Menningarsjóði Glitnis.

 

Námsgagnastofnun, Mannréttindaskrifstofa og Rauði krossinn munu annast kynningu leiksins. 

Leikinn er að finna á www.flotti.org.

 



 

 

 

Leturstærð: