Hátíðarviðburður í tilefni af útgáfu vefleikjarins FLÓTTA um mannréttindi og reynslu flóttafólks
FLÓTTI - gagnvirkur vefleikur þar sem þú kynnist reynsluheimi flóttamannsins
„Allir hafa rétt til að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum“.
14.gr. mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna.
Í tilefni af útgáfu vefleikjar fyrir ungt fólk um mannréttindi og reynslu flóttafólks bjóða Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði Kross Íslands og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna til athafnar í Vogaskóla n.k. miðvikudag 20. maí kl. 13:00.
Nemendur í Vogaskóla og viðstaddir ýta leiknum úr vör með því að spila hann í fyrsta sinn á íslensku.
Um allan heim, í öllum löndum fyrirfinnast flóttamenn og daglega lesum við um erfiðar aðstæður þeirra í fjölmiðlum. Móttaka og aðlögun flóttamanna í Evrópu eru einhver mikilvægustu stjórnmálalegu og siðferðilegu álitamál samfélagsins. Fólk neyðist til að leggja á flótta þegar mannréttindum þess er ógnað eða þau brotin. Enginn kýs sjálfviljugur að leggja á flótta; flóttamenn verða til vegna þess að stjórnvöld hafa ekki burði til eða vilja ekki, vernda borgara sína.
Leikurinn er í raun þríþættur: Í fyrsta lagi tölvuleikur þar sem þátttakendur setja sig í spor flóttamanna. Í öðru lagi fylgir leiknum upplýsingavefur þar sem hægt er að nálgast fræðsluefni um mannréttindi og flóttafólk í formi greina, viðtala og kvikmynda og í þriðja lagi fylgir leiknum kennarahandbók þar sem finna má dæmi um einföld og skemmtileg verkefni og umræðuefni sem nýtast kennurum við kennslu í tengslum við leikinn. Leikurinn nýtist þannig sem ítarlegt mannréttinda- og fjölmenningarkennsluefni, einkum fyrir nemendur á aldrinum 13-16 ára.
Í leiknum neyðist leikmaðurinn að flýja heimaland sitt í snarhasti vegna ofsókna stjórnvalda, hann fær aðeins að taka með sér þær eigur sem komast í lítinn bakpoka og þarf að yfirgefa vini og fjölskyldu. Þátttakendur kynnast þeim fjölmörgu áskorunum sem flóttamenn standa frammi fyrir á flóttanum sjálfum og þegar þeir reyna að aðlagast nýrri menningu, s.s. tungumálaörðugleikum, atvinnuleit, því að reyna að eignast vini í nýjum skóla ásamt því að kljást við fordóma og þekkingarleysi.
Vonast er til að vefleikurinn „Flótti“ auki skilning á vanda flóttafólks og stuðli þannig að auknu umburðarlyndi, fjölmenningu og mannréttindavitund í íslensku samfélagi.
Útgáfa leiksins var styrkt af Mannréttindaskrifstofu Íslands, Rauða krossi Íslands, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, félagsmálaráðuneyti, Nefnd um flóttafólk, Barnavinavinafélaginu Sumargjöf, Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar og Menningarsjóði Glitnis. Námsgagnastofnun, Mannréttindaskrifstofa og Rauði krossinn munu annast kynningu leiksins.
Leikinn er að finna á www.flotti.org.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project