Fréttir

Hópurinn "Taktu þátt" heimsótti Mannréttindaskrifstofu

9.2.2009

Þann 7. febrúar síðastliðinn fékk Mannréttindaskrifstofa Íslands nokkra góða gesti úr hópnum „Taktu þátt!“ í heimsókn á skrifstofuna. Félag kvenna af erlendum uppruna standa á bak við hópinn en hann er ætlaður konum á aldrinum 18-30 ára sem eru af erlendum uppruna. Í hópnum eru konur víða að úr heiminum meðal annars fá Rússlandi, Ghana, Póllandi, Litháen, Kólumbíu og Argentínu. Markmiðið með verkefninu er að styðja erlendar konur á Íslandi, bæta stöðu þeirra og virkja þær í samfélaginu. Framkvæmdastjóri tók á móti konunum á skrifstofunni, þar sem byrjað var á því að horfa á hreyfimynd um mannréttindayfirlýsinguna en þar á eftir tók við stuttur fyrirlestur um mannréttindi, stöðu mannréttinda á Íslandi og starf Mannréttindaskrifstofunnar almennt. Eftir fyrirlesturinn upphófust líflegar og fræðandi umræður enda af nógu að taka í svo fjölbreyttum hópi kvenna.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica