Fréttir

Velheppnað málþing um kvennasáttmála S.þ.

Fögur fyrirheit, Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna í 30 ár

31.3.2009

Þann 27.mars síðastliðinn var haldið málþing í tilefni af því að í ár er kvennasamningur Sameinuðu þjóðanna 30 ára. Málþingið var haldið í Gyllta salnum á Hótel Borg og stóð frá 14:00-16:00, en fjölmörg samtök komu að undirbúningi málþingsins en þau voru auk Mannréttindaskrifstofu, Rikk, Unifem, Stígamót, Jafnréttisstofa, Femínistafélag Íslands, Kvennaathvarf, Jafnréttisráð og kvenréttindafélag Íslands.

Gréta Gunnarsdóttir, sviðsstjóri alþjóða- og öryggissviðs í utanríkisráðuneytinu var fundarstjóri. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu hélt fyrirlestur um Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna: Sátt um samfélagsbreytingar. Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fjallaði um Skuggaskýrslur og aðhaldshlutverk frjálsra félagasamtaka. Rachael Lorne Johnstone, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri hélt fyrirlesturinn Going Private: State responsibility for domestic violence under the CEDAW. Að lokum sýndi Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi skemmtilega myndasýningu sem bar heitið, Hvers vegna þarf kvennasáttmála?, þar sem að ákvæði sáttmálans voru tengd myndum af konum víðsvegar um heiminn.

 

Kvennasamningurinn_radstefna_0101

 

Eftir fyrirlestrana var tími fyrir spurningar úr sal. Málþingið var opið öllum og var ánægjulegt hversu velsótt það var.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica