Fréttir

TAKK-herferðinni ýtt úr vör

Mannréttindaskrifstofan hleypir af stokkunum auglýsingaherferð gegn fordómum í samstarfi við Auga - góðgerðasjóð auglýsingaiðnaðarins

17.3.2009

Þann 14. mars síðastliðinn hófst Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti sem miðar að því að uppræta þröngsýni, fordóma og þjóðernishyggju í Evrópu.

Í tengslum við vikuna hefur skrifstofan hleypt af stokkunum auglýsingaherferð gegn fordómum gagnvart innflytjendum í samstarfi við AUGA - góðgerðarsjóð auglýsingaiðnaðarins. Markmiðið með auglýsingaherferðinni er að vekja fólk til umhugsunar um jákvæð áhrif fjölmenningar á íslenskt samfélag. Herferðin felst í því að þakka innflytjendum opinberlega fyrir að auðga mannlíf og menningu landsins og að taka þátt í að byggja hér upp fjölbreytt og öflugt samfélag.

mynd_auga_1Auglýsingaherferðin stendur í tvær vikur í sjónvarpi, blöðum og tímaritum, strætóskýlum og á netinu. Herferðin, sem er á vegum AUGA og Mannréttindaskrifstofu, er unnin í sjálfboðavinnu af auglýsingastofum innan Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA. Árvakur, Fréttablaðið, Afa JCDecaux, Sjónvarpið, Stöð 2, Skjár einn, Mbl.is og Vísir.is munu birta herferðina og Capacent vinnur rannsóknarvinnu tengda átakinu.

Mannréttindaskrifstofan vinnur að ýmsum verkefnum er snerta á málefnum fólks af erlendum uppruna, s.s. er varða flóttamannamál, útlendingalöggjöf, ofbeldi gegn konum, mansal, atvinnuréttindi o.fl. en í þessu starfi hafa komið fram vísbendingar um að æskilegt væri að stuðla að jákvæðari umræðu um málefni fólks af erlendum uppruna. Undanfarið, í tengslum við efnahagsþrengingar og aukið atvinnuleysi, hefur einnig nokkuð borið á fordómum gagnvart innflytjendum í tengslum við vinnumarkaðinn.

 Af þessum sökum ákvað Mannréttindaskrifstofan að sækja svo um til AUGA sjóðsins til að leggja í umfangsmeiri herferð sem hefði það að markmiði að uppræta fordóma og þröngsýni gagnvart fólki af erlendum uppruna á Íslandi og stuðla að samfélagi þar sem allir eiga jöfn tækifæri óháð útliti og uppruna. 

AUGA er góðgerðarsjóður auglýsingaiðnaðarins sem er ætlað að gera samtökum sem sinna samfélagsstarfi kleift að ná betri árangri í starfi sínu með því að beita afli auglýsinga í þeirra þágu.

Sjóðurinn hefur gert herferðir til að auka öryggi unglinga á netinu fyrir SAFT/Heimili. Herferðin Látum hvítu ljósin lifa áfram! sem hvatti fólk til að lýsa upp skammdegið með hvítum ljósum var unnin fyrir trúfélögin í landinu.
nánari upplýsingar á
http://www.sia.is/SIA/AUGA/



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica