Fréttir
Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 7. nóvember 2008.
Í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 7. nóvember næstkomandi að Hótel Sögu frá klukkan 9 til 17.
Á þinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum. Auk þess verða drög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kynnt á jafnréttisþingi, en tilgangur þess er að gefa almenningi og fulltrúum stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka kost á að skila inn hugmyndum og ábendingum vegna framkvæmdaáætlunarinnar.
Þingið verður öllum opið, en samkvæmt lögum skal sérstaklega boða til þess alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðar og fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem hafa jafnréttismál á stefnuskrá sinni.
Þeir aðilar sem hafa verið að vinna að upplýsinga- eða kynningarefni sem fjallað um stöðu kvenna og karl í samfélaginu er boðið að hafa aðstöðu þar sem hægt er að kynna efnið á þinginu fyrir utan ráðstefnusalinn.
Þeir sem hafa áhuga á sýna upplýsinga- og kynningarefni eru beðnir um að hafa samband við undirrituð á netfangið linda.ros.alfredsdottir@fel.stjr.is


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project