Hádegisfyrirlestur á vegum ASÍS Asíuseturs Íslands og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum nk. fimmtudag, 2. október, kl. 12-13, í sal 104, Háskólatorgi.
Dr. Cecilia Milwertz flytur fyrirlesturinn:
„Kína – Vesturlönd: Samskipti frjálsra félagasamtaka á sviði jafnréttis- og þróunarmála – yfirgangur, aðstoð eða samhygð“.
Fyrirlesturinn byggir á atviksrannsóknum, sem fóru fram 2004-2006 á þremur frjálsum félagasamtökum í Kína sem kenna sig við kynjarannsóknir og þróunarmál og voru stofnuð 1986, 1994 og 1995 í Shaanxi-, Yunnan- og Hebei-héruðum. Fyrirlesturinn greinir frá samskiptum þessara samtaka og vestrænna frjálsra félagasamtaka á sviði þróunaraðstoðar.
Dr. Milwertz hefur hliðsjón af hugtaki landfræðingsins Doreen Massey um rými sem afurð gagntengsla og svæði fjölhyggju í sífelldri mótun, og rennir stoðum undir þá tilgátu að kínversku samtökin og þau vestrænu séu þættir í víðtæku bandalagi um breytingar ásamt flokks-ríkisstofnunum.
Í fyrirlestrinum skoðar hún sérstaklega þessi samskipti en vestrænu samtökin gegna mikilvægu hlutverki við að útvega styrki. Slíkir styrkir geta komið á ójafnvægi vegna fjárhagslegs valds þróunarstofnana. Dr. Milwertz bendir á að slíkir samfundir snúast ekki aðeins um eitt þriggja, yfirgang, björgun eða samhygð, heldur flókin tengsl sem innihalda alla þessa þætti – samskiptin skila þó árangri, þrátt fyrir deilur og hagsmunaárekstra.
Dr. Cecilia Milwertz er rannsóknarstjóri við NIAS – Nordic Institute of Asian Studies, við Kaupmannahafnarháskóla. Hún er með MA-gráðu í kínverskum fræðum og menningarfélagsfræði og doktorsgráðu í kínverskum fræðum. Hún leggur stund á rannsóknir á frjálsum félagasamtökum sem takast á við jafnréttismál í Kína. Meðal útgefinna verka er ritgerðin: “Beijing Women Organizing for Change – A New Wave of the Chinese Women’s Movement (2002). Þá birti hún ásamt prófessor Bu Wei ritgerðina „Non-governmental Organizing for Gender Equality in China – Joining a Global Emancipatory Epistemic Community“ í The International Journal of Human Rights (2007).


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project