Fréttir

Mannréttindastofnun Háskóla Íslands auglýsir lausa til umsóknar þrjá styrki til rannsókna á mannréttindum, hver að fjárhæð kr. 200.000. Umsóknarfrestur er til 10. september 2008.

25.8.2008

Úthlutun rannsóknarstyrkja skal byggjast á faglegu mati á gæðum rannsóknarverkefna, færni og reynslu umsækjenda við rannsóknir og aðstöðu þeirra til að sinna verkefnunum. Í umsókn um styrk skal koma fram heiti rannsóknarverkefnis og markmið, ábyrgðarmenn og samstarfsaðilar ef einhverjir eru, staða þekkingar umsækjanda á sviði rannsóknarinnar og hvernig verkefninu er ætlað að auka við þá þekkingu. Veita skal upplýsingar um upphaf og áætluð lok verkefnisins, fjárhagslegt umfang og annan fjárstuðning. Sé ætlunin að óska eftir styrk við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um. Styrkþegi skal geta þess, að rannsóknarverkefni hans hafi hlotið styrk frá Mannréttindastofnun Háskóla Íslands í inngangi eða formála, þegar rannsóknin er birt opinberlega.

Rannsóknamiðsöð Íslands annast úthlutun úr sjóðnum. Umsóknareyðublöð er að finna á vefslóðinni www.rannis.is .

Mannréttindastofnun Háskóla Íslands



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica