Fréttabréf Mannréttindaskrifstofu Íslands - nóvember 2011

Í rafrænu fréttabréfi Mannréttindaskrifstofu Íslands (MRSÍ) er að finna upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og yfirstandandi verkefni aukfróðleiks um mannréttindi á Íslandi og alþjóðlegum vettvangi. Er það von okkar að fréttabréfið verði velunnurum skrifstofunnar, og áhugafólki um mannréttindamál almennt, til gagns og gamans. 

Þeir sem óska eftir að gerast áskrifendur að fréttabréfinu eða vilja hætta áskrift geta sent tölvupóst á info@humanrights.is.

Námskeið fyrir fulltrúa félagasamtaka um jafnrétti og bann við mismunun.

Þann 21. október var haldið námskeið fyrir frjáls félagasamtök og launþega hreyfingar þar sem fjallað var m.a. um hlutverk þeirra í baráttu gegn mismunun á grundvelli ESB tilskipana er banna mismunun vegna kynþáttar, þjóðernisuppruna, aldurs, fötlunar, kynhneigðar og trúar eða annarra lífsskoðana.

Námskeiðið er hluti Evrópuverkefnisins „Námskeið um jafnrétti og bann við mismunun fyrir frjáls félagasamtök – VT/2010/007“. Verkefnið er unnið í 32 Evrópulöndum (aðildarríkjum ESB, EES/EFTA (Liechtenstein, Noregi og Íslandi), ríkjum sem sótt hafa um aðild að ESB (Tyrklandi, Makedóníu –Króatíu) og Serbíu sem tilvonandi umsóknarlandi.

Markmið verkefnisins er að styrkja starf félagasamtaka sem vinna að jafnréttismálum með því að þróa fyrir þau sérstakt kennsluefni og halda námskeið um jafnrétti og bann við mismunun í öllum þáttökulöndunum.

Sjá nánar um námskeiðið hér; http://www.humanrights.is/vidburdir/nr/3047

Málstofa um Mannréttindi í þrengingum

Mannréttindaskrifstofa Íslands gaf á vordögum, í samvinnu við Háskólann á Akureyri, út bókina „Mannréttindi í þrengingum“. Af því tilefni var haldin málstofa, 28. október, þar sem fjallað var um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi á þverfaglegum nótum. Erindi fluttu höfundar bókarinnar, Rachael Lorna Johnstone og Aðalheiður Ámundadóttir ásamt Vilborgu Oddsdóttur, félagsráðgjafa hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.

Sjá nánar um málstofuna hér; http://www.humanrights.is/vidburdir/nr/3049


Ísland tekið fyrir hjá Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Fulltrúi Mannréttindaskrifstofu Íslands, fulltrúi UNICEF á Íslandi og umboðsmaður barna voru viðstödd fyrirtöku Íslands hjá Barnaréttarnefndinni þann 23. september sl. Fundurinn stóð allan daginn og lagði sérfræðinganefndin fjölda spurninga fyrir íslensku sendinefndina sem henni gafst síðan tóm til að svara síðar um daginn. Spurningarnar lutu að hinum ýmsu málefnum barna allt frá brjóstagjöf til verndar barna gegn ofbeldi. Sendinefndina skipuðu fulltrúar frá innanríkis-, mennta og menningarmála- og velferðarráðuneytum ásamt fulltrúa frá Barnaverndarstofu. Fundurinn var mjög áhugaverður og var Íslandi hrósað fyrir uppbyggilegan og góðan fund.
Nánari umfjöllun um fundinn er að finna á heimasíðu innanríkisráðuneytisins og velferðarráðuneytisins.

Framkvæmdarstjóri til Barcelona á World Justice Forum III

Framkvæmdastjóri MRSÍ fór til Barcelona á ráðstefnu, World Justice Forum III sem haldin var 20. – 23. júní sl. U.þ.b. 400 manns frá 100 löndum var boðið þangað og eru allir þátttakendur valdir sérstaklega. Þetta var í þriðja sinn sem þetta þing er haldið og the World Justice Project (TWJP), sem stofnað var af bandaríska lögmannafélaginu, American Bar Association, heldur þingið. Stuðningsaðilar WJP eru margir, m.a. Bill Gates. Réttarríkið var í brennidepli á þinginu, út frá ýmsum sjónarhornum, t.d. jafnrétti kynja, réttlátri málsmeðferð, persónufrelsi, mansali o.fl.

Meiri upplýsingar um ráðstefnuna og WJP hér; http://www.wjp-forum.org/2011/attendees

Framkvæmdastjóri til London vegna Daphne III verkefnis

Framkvæmdastjóra MRSÍ var boðið til London í byrjun september sem ráðgefandi sérfræðingi í verkefni sem stutt er af Daphne III og lýtur að samanburðarrannsóknum milli nokkurra landa á aðgerðaáætlunum stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi og málsmeðferð og verklagi í m.a. málum varðandi illa meðferð á börnum, ofbeldi í nánum samböndum o.fl. Þátttakendur voru m.a. frá Hollandi, Ítalíu, Danmörku og Þýskalandi.

Framkvæmdastjóri til Feneyja á árlega COST/AHRI ráðstefnu.

Dagana 25-27. september fór framkvæmdastjóri MRSÍ til Feneyja á árlega ráðstefnu COST AHRI. Yfirskrift þessa árs var „Hlutverk ESB in mannréttinda umbótum. AHRI eru samtök þjóðbundinna mannréttindastofnana og COST er rammaáætlun fyrir samvinnu í Evrópu á sviði vísinda og tækni og veitir styrki til rannsókna á evrópskum vettvangi.

Sjá nánar um ráðstefnuna hér; http://bim.lbg.ac.at/en/ahri-cost-0

Auglýsingaherferð gegn mismunun.

Í lok október og byrjun nóvember endurtókum við auglýsingaherferð okkar frá því í fyrra. Auglýsingunum var ætlað að stuða fólka og vekja það til umhugsunar um mismunun. Bætt var við tveimur nýjum auglýsingum sem spilaðar voru ásamt þeim frá fyrr ári. Auglýsingarnar líktust dæmigerðum lesnum auglýsingum í útvarspmiðlum sem þjóðin treystir og enduðu á orðunum; Mismunun er staðreynd. Berjumst gegn henni og fögnum fjölbreytni. Mannréttindaskrifstofa Íslands og Progress áætlunin.

Hafa viðbrögð við auglýsingunum verið góð og ljóst að þær vekja fólk til umhugsunar um þörf málefni.

Frekari fréttir af verkefnum Mannréttindaskrifstofunnar verður nú sem endranær hægt finna á heimasíðu okkar, www.humanrights.is


Mannréttindaskrifstofa Íslands, Túngata 14, 101 Reykjavík - Sími 552 27 20 - info@humanrights.is

 
Á döfinni ::::: Fræðsla og verkefni

Grundvigt samstarfsverkefni til þess að auka lagalæsi.

MRSÍ er þáttakandi í Grundvigt samstarfsverkefni. Markmið þess er að auka skilning einstaklinga á löggjöf bæði innlendri sem og alþjóðlegum samningum til þess að gera þeim kleift að átta sig á lagalegri stöðu sinni og gera þeim auðveldara fyrir að leita réttar síns. Verkefnið felst í heimsóknum samstarfsaðila hvers til annars þar sem þeir miðla af reynslu sinni og þekkingu á fullorðinsfræðslu. Verkefnið stendur yfir í tvö ár og er áætlað að því ljúki í september 2013.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi.

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Dagsetning átaksins, frá 25. nóvember, alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, til 10. desember, hins alþjóðlega mannréttindadags, var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi. Tímasetningin var einnig valin til að leggja áherslu á mannréttindabrotin sem felast í slíku ofbeldi. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis.

Mannréttindaskrifstofa tekur í ár líkt og undanfarin ár þátt í skipulagningu og framkvæmd 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Þema ársins í ár er svipað og í fyrra ofbeldi gegn konum í stríði og „Heimilisfriður - heimsfriður“ (From peace in the home to peace in the world). Nánari upplýsingar og dagskrá verða á heimasíðu okkar þegar nær dregur.

Allar almennar upplýsingar um 16 daga átakið sem og upplýsingar um átak síðustu ára má einnig finna á  heimasíðu okkar: http://www.humanrights.is/servefir/16dagar


Fræðsla fyrir starfsmenn fjölmiðla um mismunun.

Þann 23. nóvember heldur Mannréttindaskrifstofan, í samvinnu við Blaðamannafélag Íslands,  morgunverðarfund um mismunun og umfjöllum fjölmiðla um minnihlutahópa. Enn fremur er fyrirhugað að heimsækja helstu fjölmiðlana með sama fræðsluefni. Framkvæmdastjóri MRSÍ og Helga Ólafs doktorsnemi sjá um fræðsluna.


Opinn fundur 17. nóvember

Innanríkisráðuneyti, Barnaheill - Save the Children á Íslandi, MRSÍ og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna - UNICEF á Íslandi og umboðsmaður barna boða til opins fundar þann 29. nóvember nk., um fyrirtöku Íslands hjá Barnaréttarnefnd Sþ og um athugasemdir nefndarinnar. Þar mun sendinefnd ríkisins kynna undirbúninginn og fyrirtökuna sjálfa og síðan kynna samtökin og umboðsmaður barna sína aðkomu.

Samningur við velferðarráðuneytið um lögfræðiráðgjöf við innflytjendur.

Mannréttindaskrifstofan undirritaði þann 4. Nóvember sl., samning við velferðarráðuneytið um lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur. Ráðgjöfin er ætluð öllum innflytjendum á landinu óháð búsetu og fer fram í húsnæði skrifstofunnar. Ráðgjafar hafa reynslu af ráðgjöf við innflytjendur og þekkingu á innflytjendalöggjöf.




 
 

Mannréttindaskrifstofa Íslands, Hafnarstræti 20, 2. hæð, 101 Reykjavík - Sími 552 27 20 - Fax 552 27 21- info@humanrights.is