Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
21. mars er alþjóðadagur gegn kynþáttamisrétti
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi þessa dagsetningu í minningu 69 mótmælenda myrtir voru 21. mars 1960 er þeir tóku þátt í mótmælum gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku. Í tengslum við 21. mars er haldin Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti en þá koma þúsundir manna saman til að kveða niður kynþáttafordóma og misrétti í álfunni.

Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti hverfist um alþjóðadag gegn kynþáttamisrétti og miðar að því að uppræta þröngsýni, fordóma og þjóðernishyggju í Evrópu. Markmiðið er að byggja Evrópusamfélag víðsýni og samkenndar þar sem allir eru jafnir, óháð útliti og uppruna.
Samtökin sem halda utan um Evrópuvikuna heita United Against Racism og á heimasíðu þeirra er hægt að finna allar frekari upplýsingar um 21. mars sem og Evrópuvikuna. Þar er einnig að finna upplýsingar um hvernig dagskráin fer fram í öðrum löndum Evrópu á hverju ári.



16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project