Bókasafn
Bókasafnið er að jafnaði opið frá kl.10-12 og 14-16.
Bókasafn MRSÍ er enn lítið að vöxtum og er þó margt góðra bóka þar að finna. Titlar eru um þúsund talsins, þar af helmingur tímarit, árbækur og skýrslur ýmiss konar. Skrifstofan er áskrifandi að nokkrum góðum tímaritum og fær að staðaldri ýmis rit frá Sameinuðu þjóðunum, Evrópuráðinu og Öryggis og samvinnustofnun Evrópu – ÖSE svo og ýmsum frjálsum félagasamtökum.
Mestur hluti bókanna er á ensku en einnig talsvert á norðurlandamálunum (dönsku, norsku og sænsku) og lítið eitt á frönsku, þýsku og spænsku.
Lítið er til af bókum um mannréttindi á íslensku en skrifstofan reynir að afla þeirra sem út koma jafnóðum. Hún fær Stjórnartíðindi reglulega og er áskrifandi að Úlfjóti, riti félags laganema og tímariti Lögmannafélags Íslands.
Bókasafnið hefur verið skráð og því skipt í eftirfarandi 11 hluta eftir efni:
1. Um flóttamenn og hælisleitendur
2. Um minnihluta og fólksflutninga milli svæða
3. Um réttindi barna og fjölskyldumálefni
4. Almennt efni um mannréttindi
5. Um réttindi kvenna/jafnréttis/kynjamálefni
6. Um erfðaefni og mannréttindi
7. Um mannréttindi á ýmsum svæðum heims
8. Um mannréttindalög, lög, samningar, o.fl.
9. Tímarit og lögfræðilegr skýrslur
10. Tölvuefni, geisladiskar og myndbönd
11. Orðabækur

