Jafnrétti og bann við mismunun
Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands (65. gr.)
Jafnræðisreglan er ein af grunnhugmyndum
mannréttinda. Meginreglan um bann við mismunun er grundvallarregla í löggjöf Evrópusambandsins og regluna er að finna í helstu mannréttindasamningum og í 65. gr. stjórnarskrárinnar. Sérstakir samningar hafa einnig verið gerðir til að berjast gegn mismunun gagnvart tilteknum hópum fólks, s.s. gagnvart konum og fötluðu fólki, og svæðisbundin löggjöf samþykkt á tilteknu sviði, s.s. tilskipun Evrópusambandsins um jafnrétti í atvinnulífi og í starfi.
Hugtökin mismunun og jafnrétti eru nátengd en mismunun verður þegar brotið er gegn jafnræðisreglunni. Bann við mismunun krefst þess að sambærileg tilvik fái sambærilega meðferð og að ólík tilvik fái mismunandi meðferð. Að mismuna merkir því að fara í manngreinarálit eða koma ólíkt fram við einstaklinga sem eru í sömu stöðu, eða að meðhöndla öll tilvik eins þegar þau eru í raun ólík. Þegar komið er fram á þennan hátt, án þess að hlutlægar eða málefnalegar ástæður liggi til grundvallar, þá er brotið gegn jafnræðisreglunni.
Mismunun getur verið bein og óbein. Bein mismunun á sér stað þegar manneskju eða tilteknum hópi er gert ókleift að njóta gæða samfélagsins vegna ætlaðra eða sýnilegra, andlegra eða líkamlega eiginleika eða atferlis, og einstaklingi er gert erfiðara fyrir en öðrum við sambærilegar aðstæður.
Dæmi um beina mismunun
- A er sagt að hún fái ekki stöðuhækkun vegna þess að hún fari brátt á eftirlaun þar eð fyrirtækið sé að leita að einverjum sem verði við störf til frambúðar.
- Í atvinnuauglýsingu er tekið fram að fólk með fötlun verði ekki boðað í viðtal eða að leitað sé að ungu fólki, jafnvel þótt eldra fólk geti vel unnið starfið.
- Verslunareigandi neitar að ráða hæft starfsfólk vegna þess eins að það er af tilteknum þjóðernisuppruna.
- Eigandi veitingastaðar varnar fólki af tilteknum kynþætti inngöngu á staðinn.
Óbein mismunun á sér stað þegar ráðstafanir, skilyrði eða aðferðir sem virðast gera öllum jafnt undir höfði eru einstaklingum, sem tilheyra tilteknum hópi, óhagstæðar í samanburði við aðra. Hér er um óbeina mismunun að ræða, nema rökstyðja megi ráðstafanirnar, skilyrðin eða aðferðirnar á hlutlausan hátt með því að þær miði að lögmætu markmiði og að aðferðirnar sem beitt er til að ná markmiðinu séu viðeigandi og nauðsynlegar.
Mismunandi meðferð eins eða mjög svipaðra tilvika brýtur þó ekki alltaf gegn jafnræðisreglunni. Réttmætar starfskröfur fyrir tilteknar starfsgreinar, „sanngjörn aðlögun“ til að mæta þörfum fólks með fötlun, sértækar aðgerðir með vísan til jafnréttislöggjafar og ákveðnar undantekningar tengdar aldri eru heimilar.
Dæmi um óbeina mismunun
- Umtalsverður launamunur milli fólks í fullri vinnu og fólks í hlutastarfi, þar sem fólkið í hlutastarfi er flest af erlendum uppruna.
- Þýðingafyrirtæki krefst þess að allir þýðendur hafi ökuréttindi því stundum sé þörf á að sendast með skjöl. Þar sem þetta útlokar sumt fatlað fólk frá því að fá vinnu hjá fyrirtækinu en ökuréttindi eru ekki nauðsynleg við þýðingavinnu, þá telst fyrirtækið mismuna óbeint þessum tiltekna hópi fatlaðra, nema það geti sýnt fram á að málefnaleg ástæða sé fyrir kröfunni um ökuréttindi.
- Regla fyrirtækis, sem virðist hlutlaus, um ákveðinn klæðaburð leiðir til þess að einstaklingur eða hópur einstaklinga af tiltekinni trú er útilokaður frá vinnu í fyrirtækinu. T.d. ef matvöruverslun bannar starfsfólki að vera með hatta við vinnu. Þessi regla útilokar þá sem aðhyllast trúarbrögð sem krefjast höfuðfata, t.d. shika og gyðinga, fyrirtækið telst mismuna þessum hópum óbeint, nema það geti sýnt fram á málefnalega ástæðu fyrir hattabanninu.
- Krafa um tiltekna lágmarks-líkamshæð fyrir tiltekið starf sem gerir það annars vegar að verkum að konur eiga minni möguleika en karlar á að fá starfið og það sama reynist eiga við um fólk af lágvaxnari „kynþáttum“.
Nánar verður fjallað um beina og óbeina mismunun í tengslum við tilskipanir ESB hér að neðan.
Fjölþætt mismunun á sér stað þegar fólk verður fyrir mismunun á grundvelli fleiri en eins eiginleika; t.d. bæði á grundvelli aldurs og vegna fötlunar. Fjölþætt mismunun er flókið fyrirbrigði þar sem erfitt getur verið að greina á milli einstakra mismununarþátta. Einstaklingurinn fær lakari meðferð vegna þess sem kalla má „neikvæð samlegðaráhrif“ ólíkra eiginleika, s.s. vegna kynhneigðar, aldurs, kynþáttar og kynferðis. Hefðbundin jafnréttislöggjöf hefur til þessa ekki tekið ásættanlega á fjölþættri mismunun. Hefðbundin vernd gegn mismunun byggir á því að einstaklingur sem kærir mismunun geri það á grundvelli einnar mismununarástæðu og þá sé unnt að bera stöðu hans saman við annan sem ekki hefur til að bera þau einkenni sem mismununin er talin byggja á. Sjaldnast er gert ráð fyrir samspili fleiri mismununarþátta en hin hefðbundna krafa um „samanburðartilvik“ er erfið þegar um fjölþætta mismunun er að ræða. Nánar verður fjallað um fjölþætta mismunun hér að neðan.
Dæmi um fjölþætta mismunun
- Múslímskri konu er neitað um starf þar sem hún má ekki bera blæju í vinnunni.
- Samkynhneigðum manni með eyðni er sagt upp starfi hjá skóla sem rekinn er af trúarsamtökum.
- Fötluðum Róma-dreng er neitað um skólavist.
-
Kannað er hvort mismunandi meðferð sé beitt á sambærileg tilvik og hvort sambærilegri meðferð sé beitt á mjög ólík tilvik. Þetta getur þó reynst erfitt þegar um fjölþætta mismunun er að ræða.
-
Metið er hvort meðferðin verði réttlætt með hlutlægum og málefnalegum ástæðum. Við mat á því hvort hlutlægar og málefnalegar ástæður liggi að baki er litið til þess hvort sú meðferð sem kvartað er undan stefni að lögmætu markmiði og hvort gætt sé meðalhófs þannig að ekki sé gengið lengra en þörf krefur í því skyni að ná því markmiði sem stefnt er að.
-
Við mat á því hvort hlutlægar og málefnalegar ástæður séu fyrir hendi njóti ríki ákveðins svigrúms til mats sem fer eftir aðstæðum hverju sinni.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project