Blindraletur

Hvað eru mannréttindi?

Allir eru jafnbornir til virðingar og óafsalanlegra réttinda sem eru undirstaða frelsis, réttlætis og friðar í heiminum.       

Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna


Mannréttindahugtakið byggir á tveimur megingildum; Blindraleturmannlegri reisn og jafnrétti.

Mannréttindi lýsa grundvallarviðmiðum sem eru skilyrði þess að okkur sé fært að lifa með reisn.

Mannréttindi árétta göfgi og gildi mannsins og byggja á því að allir hafi sömu óafsalanlegu mannréttindi. Við krefjumst öll jafnra tækifæra og mannsæmandi lífskjara og höfum þörf fyrir fæði, klæði og húsaskjól.

Við viljum geta haft áhrif á samfélagið sem við búum í og fá tækifæri til að njóta gæða þess.

Í mannréttindum felst einnig vernd gegn ofbeldi af öllum gerðum og þau grundvallast á virðingu fyrir einstaklingnum.

Mannréttindi vinna gegn skorti á umburðarlyndi og eiga að gera okkur kleift að byggja samfélag sáttar og samlyndis.

Mannréttindum er í lagalegum skilningi ætlað að tryggja einstaklingum og hópum réttindi og vernd gegn hvers konar aðgerðum, eða aðgerðaleysi stjórnvalda, sem vegur að grundvallarréttindum eða mannvirðingu fólks. Þótt enn sé deilt um eðli og inntak mannréttindahugtaksins þá hefur alþjóðasamfélagið komið sér saman um tilteknar meginreglur sem ríkjum ber að halda í heiðri.


Mannréttindi eru:

  • Óafsalanleg: Þau verða aldrei af okkur tekin. Þó er heimilt – við sérstakar aðstæður og að uppfylltum þröngum skilyrðum – að takmarka mannréttindi, t.d. tjáningarfrelsi til að tryggja friðhelgi einkalífs; og að svipta dæmdan sakamann frelsi sínu.
  • Ódeilanleg, háð innbyrðis og samtvinnuð: Öll mannréttindi eru tengd órjúfanlegum böndum; borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda verður ekki notið án menningarlegra, efnahagslegra og félagslegra réttinda, og öfugt. Öll mannréttindi eru jafn mikilvæg.
  • Algild: Þau eiga alls staðar við; eru óháð stétt og stöðu, menningu og efnahag og allir eiga tilkall til mannréttinda án tillits til kynferðis, kynþáttar,þjóðernisuppruna, kynhneigðar, kyngervis, trúar/lífsskoðunar, fötlunar, aldurs, stjórnmálaskoðana, uppruna eða annarra þátta.

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica