Málþing um löggjöf gegn mismunun á Íslandi
Iðnó, 30. janúar 2009
Mannréttindaskrifstofa Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytið standa að málþinginu, í samstarfi við Fjölmenningarsetrið, Samtökin´78, Öryrkjabandalagið, Landssamtökin Þroskahjálp, Samráðsvettvang trúfélaga, Kvenréttindafélag Íslands og Alþjóðahús.
Dagskrá
12:00 Léttur hádegisverður
13:00 Tilskipanir Evrópusambandsins um bann við mismunun á Íslandi.
Helgi Hjörvar, formaður starfshóps á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins.
13:10 Íslensk löggjöf gegn mismunun og mögulegar umbætur.
Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík.
13:40 Ný jafnréttislöggjöf og hlutverk umboðsmanns gegn mismunun í Svíþjóð. Anna Theódóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá umboðsmanni Svía gegn mismunun.
14:20 Tilskipanir Evrópusambandsins og mismunun á vinnumarkaði á Íslandi. Magnús Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands.
14:50 Pallborðsumræður og fyrirspurnir. Í pallborði sitja auk fyrirlesara:
Halldór Sævar Guðbergsson, framkvæmdastjóri ÖBÍ
Katrín Jónsdóttir, fræðslufulltrúi Samtakanna´78
Margrét Margeirsdóttir, formaður félags eldri borgara
Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss
Toshiki Toma, prestur útlendinga
Málþingið er styrkt af PROGRESS-áætlun Evrópusambandsins.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Skráning tilkynnist til icehr@mannrettindi.is fyrir 29. janúar.

